Sektir

Undanfarin ár höfum við leikmenn verið með sektarsjóð í gangi. Við höfum til að mynda verið að sekta menn fyrir að koma of seint, nota síma í klefanum eða að síminn hringi, gleyma fatnaði eða búnaði á æfingasvæðinu og fleira. Við höfum notað peninginn í hin ýmsu mál t.d skemmtanir liðsins, kaup á græum í klefann. Í ár höfum við verið latir í þessu og eiginlega bara lélegir. Mér finnst t.d Helgi Már sleppa þræl vel í uppáhalds sektarákvæði mínu en það er að birtast í fjölmiðlum ótengdum fótboltanum því það dregur athyglina frá heildinni. Helgi Már er að verða faðir á næstu dögum með ungri snót úr Keflavík (sem ætti að vera sekt útaf fyrir sig). Það kom þessi líka fína grein í Séð og heyrt um daginn að þau væru að eignast Batchelor barn. Þarna á Helgi semsagt að borga sekt en ég get ómöglega munað hve há sektin var. Getur Orri (sektarstjóri)ekki komið með það hér svo það sé á hreinu?

Óli Stefán


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

ray sokkur jónsson er sektarstjóri og ég held að hann hafi verið að tala um að þetta gæti verið 50 þús í sekt.

orri (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 15:08

2 identicon

Já ég er alveg samamála með að sekta menn sem koma í Séð og Heyrt en þætti vænt um að það væri ekkert verið að auglýsa það neitt meira að maður hafi komið í þessu tímariti, er ekkert alltof stoltur af því hehe.  Já það er spurning um að sekta mann líka fyrir að vera með stelpu úr kef, það á nú ekki að gerast.,..

Helgi Már (IP-tala skráð) 13.7.2007 kl. 19:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband