Lengjubikar

Ekki var nú það nein frægðarför sem við fórum í Keflavík á laugardaginn til að spila við Blikana í okkar fyrsta leik í Lengjubikarnum.  leikar enduðu með 5 - 1 tapi og skoraði Undra steinn mark okkar eftir hornspyrnu.  Við spiluðum ágætlega fyrstu 60 mínúturnar í leiknum en eftir það þá hrundi leikur okkar eins og spilaborg og við gáfum þeim allt of ódýr mörk í lokin.  Næsti leikur okkar er um næstu helgi á móti Selfoss í Reykjaneshöllinni og þá lofa ég betri spilamennsku hjá okkur.  Liðið var eftirfarandi. Magnús Þormar í markinu, vörnin var Ray, Jobbi, Markó og Ási á miðjunni voru Scotty, Alex, Jói og Orri og frammi voru Palli og Andri.  Inná komu svo Svenni, Óli Baldur, Óli Daði.  Eysteinn og Bogi voru fjarverandi vegna veikinda og meiðsla.

kveðja Vinurinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband