Jæja félagar þá er komið að því að spila stærsta leik okkar í sumar. Það er ljóst að þetta verður verðugt verkefni og langt frá því að vera auðvelt. Þróttur R hefur hundelt okkur nánast frá fyrstu umferð og okkur ekki tekist að hrista þá af okkur enda eru þeir með öflugt lið og greinilega góðan þjálfara. Við höfum verið að spila vel að undanförnu og er ég alveg klár á því að ef við hittum á góðan dag þá vinnum við.
Þróttarar eru á fullu að undirbúa stemmningu fyrir leikinn og virðist fjöldi fólks ætla að mæta. Ef einhvern tímann það hefur verið þörf á okkar fólki þá er það núna. Nú ætti okkar stuðningsmenn að taka sig til og búa til þá stemmningu sem var í Keflavíkurleiknum þegar við héldum okkur uppi 2005. Fyrst hægt var að búa til svoleiðis stemmnigu fyrir bardaga um veru okkar í deildinni, þá ætti að vera hægt að gera það sama fyrir úrslitaleik um sigur í þessari deild.
Fjölnir sigraði Njarðvík í fyrsta leik þessarar umferðar þanning að þeir eru á hælum okkar líka. Nú held ég að við ættum að bretta upp ermar, spýta í lófanna og hrista þessi lið af okkur í eitt skipti fyrir öll.
Óli Stefán
Íþróttir | 30.8.2007 | 23:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ekki áttu menn von á því að yngri mundu vinna í gær??? Það voru þrjár stórar ástæður fyrir því að það hefði aldrei geta gerst.
numero uno. Jankó var í markinu hjá eldri og varði á köflum stórkostlega. Hvað eru menn eins og Jói Helga og Andri að reyna að skora hjá honum þegar þeir vita að þeir eiga ekki möguleika?
Numero........two. Gamli fór í senterinn og skoraði að sjálfsögðu sigurmarkið með stórkostlegum skalla eftir svakalega sendingu frá Nostone. (Við Eysteinn erum samtals 65ára strákar mínir)
Numero three. Það hefur ekki gerst frá því að Hjalli og Grétar Einars voru að æfa að yngri hafi unnið á æfingu.
Óli Stefán
Íþróttir | 29.8.2007 | 22:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Þó að ég sé harður Arsenal aðdáandi þá eru þetta leiðinlegar fréttir fyrir alla að Ole Gunnar Solskjær sé hættur vegna meiðsla. Maður hreinlega getur ekki annað en dáðst að ferli hans. Alltaf hélt hann tryggð við sína menn þó að margir vildu hann burt og ótrúlegri varamenn er ekki hægt að finna. Þetta er svipað áfall fyrir knattspyrnu heiminn og þegar Martin Kewon hætti hjá Arsenal.
Óli Stefán
Íþróttir | 28.8.2007 | 14:57 (breytt kl. 14:57) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fyrir þá sem skoða bloggið hans Eysteins þá vita þeir að hann kemur oft með gullsetningar frá þeim yngstu í fótboltanum en hann er að þjálfa þann aldursflokk. Það er á hreinu að þetta breytist lítið með árunum og hafa í gegnum árin komið þvílíkir gullmolar að ef maður hefði skrifað þá niður væri maður með efni í metsölubók. Í dag átti norðantröllið snilldarsetningu þegar hann var að rökræða við Paul á ensku. Paul var semsagt að skjóta á Orra með það að hann væri svo svakalega skapstór og var Orri nú ekki lengi að svara því með að segja "you don´t have money for saying that" sem á að vera á íslensku " þú hefur nú ekki efni á að segja þetta".
Óli Stefán
Íþróttir | 27.8.2007 | 22:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Mikið er rosalega gaman að skoða stigatöfluna þessa dagana. Komnir með 41 stig eftir 17 leiki er bara nokkuð vel af sér vikið. Menn voru eins og oft áður í sumar tilbúnir í slaginn í gær og uppskeran eftir því. Gaman fyrir "norðan tröllið" að setja hann á móti gömlu félugunum en pjakkurinn hefði alveg mátt setja í það minnst tvö önnur.
Eftir viku er síðan algjör úrslitaleikur við Þrótt í Reykjavík og þann leik verðum við að vinna takk fyrir því það er ekkert annað en sigur í þessari deild sem kemur til greina.
Ég vil síðan þakka Sibba fyrir skemmtilegt videokvöld þar sem sýndur var besti Djúpu laugar þáttur sem sögur fara af. Stóribjörn er búinn að redda sumrinu hjá Jóa Helga sem hló mikið af stressinnkomunni minni.
Óli Stefán
Íþróttir | 26.8.2007 | 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá eru ekki nema 6 leikir eftir og við efstir með 38 stig. Þessi stigafjöldi hefur nú oftar en ekki dugað til að sigra deildina en það er nú aldeilis ekki núna. Við erum stigi á undan Þrótti sem hefur verið að þjarma að okkur í síðustu leikjum en við gefum ekki tommu eftir, það er á hreinu.
Næsti leikur verður ekkert slor og þarf maður ekki annað en að rifja upp fyrri leik okkar við Þórsara á Akureyri til að staðfesta það. Ef maður á að vera alveg sanngjarn þá áttum við ekki skilið að vinna þann leik því að þeir voru mikið mun betri en við í seinni hálfleik og stóð það oft á tíðum frekar tæpt að við fengjum mark á okkur. Í stað þess að fagna stigi sem maður hefði glaður gert þá tókum við 3 stig við mikinn fögnuð.
Við erum búnir að vera flottir í sumar á móti liðum sem eiga að vera lakari en við og aldrei höfum við vanmetið eitt einasta lið. Þetta verður ein enn þrautin sem við verðum að fara í gegnum og ef það tekst þá hef ég fulla trú að við klárum þetta mót með stæl og tökum dolluna góðu í september.
Óli Stefán
Íþróttir | 23.8.2007 | 21:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Golfið hefur oft verið svona annað sport okkar knattspyrnumanna og er ég einn þeirra sem hef fengið þessa bakteríu. Af 25 manna hóp okkar hugsa ég að 15-20 leikmenn hafi farið í golf í sumar. Auðvitað eru menn misgóðir í þessu og hjá okkur held ég að það sé ekki á neinn hallað þegar ég segi að Gummi Bjarna og Orri séu skástir af okkur. Andri Steinn myndi fá mestu framfarir þar sem hann byrjaði í þessu í sumar og er kominn með sett sem kostar vel á annað hundruð krónu nýttr. Þar sem golfáhugi okkar er frekar mikill væri ég til í að skipuleggja golfferð úr á land einhvern laugardaginn áður en mótið klárast. T.d væri hægt að skella sér í bústað á Flúðum og spila tvo 18 holu hringi. Hvernig myndi þetta leggjast í ykkur? Ef menn eru til í þetta endilega látið vita og gerum eitthvað í þessu.
Óli Stefán
Íþróttir | 21.8.2007 | 23:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
Kl 17.30 eftir gott helgarfrí. Von er á góðri æfingu frá karlinum þannig að það er betra að taka spariskóna með. Ég var að spá hvort við ættum ekki að klára stigaleikinn góða og skella á umferð þar til tímabili líkur? Við erum lausir við efstu menn af listanum þá Albert Ara og Eyþór Atla þannig að nú opnast möguleikar fyrir einhverja aðra að blanda sér í toppbaráttuna eins og t.d Mike og Jóhann.
Nú finnst mér líka alveg að detta tími á að gera eitthvað saman fyrir utan völlinn. Ég legg til að leikmenn komi með hugmyndir á æfingu sem skemmtinefnd tekur á móti og vinnur úr. Við höfum þrátt fyrir gott gengi í sumar verið óhemju slakir í þessu og ekki seinna að vænna en að fara að gera eitthvað í því.
Óli Stefán
Íþróttir | 20.8.2007 | 13:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Það er miklu skemmtilegra að vera á toppnum og ég held að það sé ekki spurning að við komum til að gera allt til að halda því það sem eftir er.
Leikurinn í gær var vel leikinn af okkar hálfu og erum við Jankó sammála um að þetta sé einn best spilaði leikur okkar í sumar. Hins vegar verðum við að klára sóknir okkar betur en það hefur reynst okkur dýrkeypt að nýta færin ekki betur. .
Næst er það Þór Ak á heimavelli og öll okkar einbeitning fer nú í þann leik. Þór vann Fjarðabyggð í dag á heimavelli sem er nokkuð sem okkur tókst ekki fyrr í sumar þannig að þetta verður án nokkrurs vafa hörku leikur.
Við Andri Steinn fórum á völlinn í dag að horfa á Fjölni spila við KA. Þarna mættust þau lið sem hafa unnið okkur í sumar og fór það þannig að Fjölnir vann mjög slaka KA menn 4-0. Það var skrítið að sjá KA spila því þetta var langt frá því að vera sama lið og spilað á móti okkur fyrir þremur vikum en liðin í þessari deild virðast leggja gjörsamlega allt í leiki á móti okkur svo horfir maður uppá þessi lið bjóða uppá svona spilamennsku í næsta leik. Frekar furðulegt
Óli Stefán
Íþróttir | 18.8.2007 | 21:22 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Á leikdegi undirbúa menn sig misjafnlega fyrir leik. Sumir vilja sofa fram eftir öllu og liggja bara fyrir fram að leik. Aðrir vilja vakna snemma og helst vinna fram að leik. Menn borða líka misjafnlega og á öllum tímum dags. Ég hef meira að segja heyrt um leikmann sem verður að lúlla hjá konunni rétt fyrr mætingu. Sitt sýnist hverjum í þessu eins og öllu öðru.
Minn fullkomni undirbúningur fyrir leik er hins vegar á þennan veg.
Ég vil helst vinna fram að hádegi og borða vel strax eftir vinnu. Þegar heim er komið legg ég mig í svona einn og hálfan tíma. Vakna um 14.30 og skelli mér í kalda sturtu.
Frá 15.00 til 16.00 fer ég í sófann og horfi á gamlan leik með Grindavík og verð ég að hafa spilað vel í þeim leik og helst skorað (ekki erfitt að finna svoleiðis leik þar sem maður á tugi marka í efstu deild).
Uppúr 16.00 skelli eg mér á Nings og fæ mér núðlurétt númer 68 á matseðlinum og hrísgrjón plús kalt vatn með.
Eftir matinn er klukkan að ganga 17.00 og fer að líða að mætingu. Ég fer og klæði mig í mætingagallann og set búnaðinn í töskuna og legg af stað suður (miðað við að ég sé að spila í Grindavík)
Á leið minni suður tengi ég handfrálsa búnaðinn í símann og hringi í tvo af mestu knattspyrnuspekingum landsins þá Björn Óskar Andrésson og Rúrik Hreinsson og fer yfir leikinn með þeim. Í þessu samtali er farið yfir hvernig ég fagna marki ef ég skora og hversu margar kippur af bjór ég fæ fyrir hvert mark.
Ég er kominn suður einum og hálfum tíma fyrir leik og það er tími fyrir eina appelsínu og svart kaffi sem ég sötra á meðan Jankó fer yfir leikinn. 40 min fyrir leik er ég síðan kominn út á völl í upphitunar rútínu sem ég fer alltaf í.
Svona er minn fullkomni leikdagur. Ég er alls ekki að segja að þetta það sé gott fyrir alla að fara í þessa rútínu en eftir 20 ára rannsókn hjá mér þá er ég búinn að komast að því að þetta hentar mér fullkomnlega.
Óli Stefán
Íþróttir | 17.8.2007 | 13:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (10.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
348 dagar til jóla
Spurt er
Af mbl.is
Tenglar
Annað
EAS
Aðeins síðri Grindavíkursíður
Aðrar síður sem innihalda íþróttir og bæjarmál í Grindavík
Heimasíður knattspyrnuliða hérlendis
Tenglar á síður heimasíður hjá knattspyrnuliðum á Íslandi
Jan. 2025 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | 3 | 4 | |||
5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 |
12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 |
19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 |
26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |