Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Slakur leikur

Maður væri að ljúga ef maður færi að halda því fram að við hefðum verið að spila okkar besta bolta í gær því það gerðum við svo sannarlega ekki. Ég reyndar held því alveg statt og stöðugt fram að við áttum aldrei skilið að tapa heldur. Jafntefli hefði verið sanngjarnt því ekki voru eyjapeyjar betri en við.

Aðstæður voru ekki góðar að því leitinu til að það stóð sterkur norðan vindur beint á annað markið. Ég reyndar átti valið og valdi með vindi í fyrrihálfleik. Við byrjuðum vel og tókum völdinu og spiluðum eins og við eigum að gera. Markið lá í loftunu og kom það eftir 10 min þegar Númi þrumaði boltann í netið. Eftir þetta mark hættum við að spila. Við fáum algjört aulamark á okkur eftir röð mistaka en boltinn rétt fór yfir línuna og stoppaði án þess að ná í netið. Í seinni hálfleik hafði vidurinn aukist til muna og þeir pressuðu stíft en við stóðum allt af okkur og vorum að ná tökum á leiknum þegar þeirra maður var allt í einu langt fyrir innan eftir skot og kláraði leikinn. Eftir markið vöknuðum við aftur og fórum að spila okkar bolta en það dugði ekki

Það sem pirrar mig mest er að við virðumst ekki geta drepið leikina og haldið áfram okkar skipulagi. Alltaf þegar við komumst yfir þá hættum við að spila og förum að reyna e-ð annað sem við æfum aldrei.

Nú er þetta þannig að eigum frestaðan leik heima á miðvikudag við Fjölni og það er engum blöðum um það að flétta að ef við ætlum ekki að enda í rugli og lífbaráttu um efstudeildarsæti þá verðum við að vinna þann leik. Ég veit að við getum það þó að Fjölnir sé með hörkulið, við virðumst bara vera farnir að gleyma því að við erum það líka.

Óli Stefán 


Frestað

Leiknum við ÍBV sem átti að fara fram í dag var frestað. Þetta fór því eins og ég spáði fyrr í vikunni en það var löngu útséð að við myndum ekki spila í dag. Þegar við áttum að fljúga kl 10 í morgun var 31m á sek á Stórhöfða. Við gerðum okkar besta í því að fá leiknum flýtt og spila hann á föstudagskvöld en ÍBV neitaði þeirri ósk. Í stað þess að spila í blankalogni eins og var í Eyjum á föstudag þá vildu þeir frekar spila í stormi og ógeðisveðri eins og spáð var. Leiknum er frestað til morguns en það spáir ágætu þá.

Óli Stefán 


ÍBV-Grindavík

Jæja þá er loks komið að leik í þessari deild okkar en við höfum ekki spilað síðan við töpuðum á móti Þrótti. Leikur morgundagsins er á móti ÍBV í Eyjum. Reyndar er ekkert útséð með hann útaf veðri en maður verður bara að undirbúa sig eins og hann verði á morgun þangað til annað kemur í ljós. Við leikmenn tókum léttan fund í dag með stjórn og þjálfara og er mikill samhugur í mönnum og við ákveðnir að tryggja sætið eða fara langt með það á morgun. Við höfum spilað vel í æfingaleiknum og á æfingum þannig að menn hafa sjaldan verið betur búnir í svona slag en akkurat núna. Eyjapeyjarnir verða að vinna til að eiga séns á því að ná okkur og koma því til með að selja sig dýrt. Mætum því hressir uppá völl í fyrramálið ákveðnir í að ná í þessi 3 stig á morgun þvi að við eigum vissulega að geta það. 

Óli Stefán 


Ekkert sérstök veðurspá

Eitt af því sem mér finnst gaman að gera er að spá í veðrið. Ætli það sé ekki bara alið upp í manni á netaverkstæðinu með öllum sjóurunum að spá í veðrið, hvort að það verði bræla þennan dag eða ekki. Þetta áhugamál hefur fylgt manni í gegnum árin en hefur færst úr því að spá í hvort það verði róið í það að spá í hvort það verði leikur. 

Núna eru tveir dagar í leik útí Eyjum og útlitið ekki bjart með veðrið. Eins og sést hér spáir veðurstofa íslands stormi kl 12.00 í Vestmannaeyjum og get ég ekki með nokkru móti séð að það verði spilað á laugardag. Á sunnudag verður hins vegar mun skaplegra veður eins og sést hérna og því mun gáfulegra að spila leikinn þá. 

Segjum að leikurinn verði á sunnudag en þá skapast nýtt vandamál og það er að við eigum inni frestaðan leik við Fjölni og er hann settur á þriðjudag. Það yrði því alltof stuttur tími á milli leikja og þá þyrfti að fara að færa þann leik til.

Leikjum á íslandi er yfirleitt ekki frestað vegna veðurs nema að það sé ekki flugfært. Mér finnst það oft á tíðum algjör vitleysa því að það segir sig sjálft að það hefur ekki nokkur maður gaman að því að spila hvað þá horfa á fótbolta ef að það væri stormur eins og hann spáir á laugardag. 

 Óli Stormur


Ósanngjarnt tap

Við spiluðum í gær við mjög sterkt lið Blika. Þeir hafa að mínu mati á einu allra skemmtilegasta liðið landsins að tefla. Við hins vegar spiluðum mjög vel og leikurinn endaði 2-3 fyrir þá en ekki var það nú sanngjarnt. Þeir stilltu sínu sterkasta liði upp en við spiliðum þá á köflum sundur og saman sem verður bara að teljast nokkuð gott. Þar sem mér líkar afskaplega vel við Óla Kristjáns þjálfara þeirra ákvað ég að gefa þeim eitt stk mark með því að detta gjörsamlega með boltann þannig að sóknarmaður þeirra komst í gegn og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Denna í markinu sem stóð sig mjög vel í leiknum. Svo fengum við held ég fjórum sinnum maður á móti markmanni sem verður að fara að nýtast betur. Númi skorðaði svo úr fimmta skiptinu sem við komumst maður á móti markmanni. Undra Steinn átti síðan tilþrif leiksins þegar hann hamraði boltann viðstöðulaust í netið. Þeir skoruðu svo 2 mörk á síðustu mínutum leiksins og unnu. Við spiluðum eins og áður sagði mjög vel og sagði Óli Kristjáns að hann væri mjög hrifinn af þessu liði okkar. 

Liðið byrjaði þannig að Denni var í marki-Ray Oli St Eysteinn og Marinko voru í vörn. Ivan Zkela Gummi B Palli og Paul voru á miðjunni svo voru Ivan Fhirer og Númi frammi. Í seinni hálfleik komu síðan Orri-Undra Steinn-Jói H- Scotty-Þorfinnur inná.

Helgi Már farð faðir í nótt kl 00.05. Hann og Írís ólu af sér dreng sem var 18mekur og 54cm. Við óskum þeim til hamingju með það. 

 

Óli Stefán 


Grindavík-Breiðablik

Í Kvöld er leikur hjá 23ára liði okkar við Breiðablik. Jankó ætlar að tefla fram blönduðu liði þannig að allir koma til með að spila eitthvað. Leikurinn byrjar kl 18.00 og er í þetta sinna alveg örugglega í Grindavík.

Við fórum vel heppnaða bústaðaferð um helgina og spiluðum Mfl grindavík open golfmót. Skipt var í 4 holl og fór þetta þannig fyrir sig að vanur golfari var dreginn með óvönum. Til að auka gleðina sem var að sjálfsögðu aðalmálið í þessari ferð þá ákvað mitt holl að skíra sig nöfnum frægra golfara, t.d var ég Colin Mongomerie og þá máttu hinir í hollinu ekki kalla mig Óla. Þeir sem klikkuðu þurftu að taka 10 armbeygur. Menn klikkuðu mismikið á þessu og þurfti Andri Steinn t.d að taka um 300 armbeygjur á 9 holum. Á 8.holu þegar ég og Þorfinnur vorum með forustu í mótinu varð ég fyrir því óláni að vera skotinn niður. Rúrik Hreinsson sem var gestaspilari skaut þá í mig af um 150 metra færi. Kúlan fór beint í bakið á mér og fór svona 30 metra til baka. Þeir kölluðu allir FOR eins og gert er en það sem ég klikkaði á var að þeir kolluðu alltaf FOR Monty sem var mitt gælunafn. Ég gat ekki haldið leik áfram en mér skilst að það sé ekki alveg ljóst hver vann því talningin var hálf dularfull hjá sumum.

Mjög góð helgi að baki og ég legg til að við gerum svona ferð að árlegum viðburði.

 

Óli Stefán 


Fylkir-Grindavík

Leikurinn við Fylki verður í Árbæ en ekki í Grindavík eins og fyrst var talið. Hann byrjar kl 18.00. og þið sem viljið sjá hvar við stöndum gagnvart úrvalsdeildarliði endileg komið og kíkið.

Óli Stefán 


Sumarbústaða ferð

Um helgina verður farin sumarbústaðarferð í Borgir í Grímsnesinu. Planið er að mæta ekki seinna en kl 12.00 á laugardag í léttan hádegisverð. Dregið verður í holl í golfið eftir matinn. Klukkan 13.30 er síðan tee-off í Mfl Grindavík open í Kiðaberginu.

Verð í bústaðinn verður um 3000 á mann en við vitum ekki hvað kostar í golfið, það er verið að vinna í því að fá sportprís á völlinn. Menn verða að taka með sér sæng eða svefnpoka og þið sem eigið dýnu endilega kippið henni með. Svo má ekki gleyma einhverju á grillið, einn tvo bjóra og nátturlega góða skapið (Orri). 

Í kvöld hófst 18.umferð með fjórum leikjum. Þróttararnir jöfnuðu á 93.mín 2-2 á móti Þór. Þar með eru þeir þremur stigum á undan okkur með markatöluna 41-19 á meðan okkar markatala er 35-16. Þeir eru semsagt með 3 mörk í plús á okkur. Við förum til Eyja næst og spilum við ÍBV sem vann Njarðvík 1-3. Nú verðum við bara að vinna eyjapeyjana og tryggja okkur upp um leið og við setjum pressuna á Þrótt fyrir síðustu umferðirnar.

Óli Stefán 

 

 


Frestaður leikur

Leiknum við Fjölni sem átti að fara fram núna á fimmtudag hefur verið frestað til 18.sept en honum var frestað vegna þess að markmaður þeirra var valinn í u21árs landsliðið.  Þetta kemur sér ekki vel fyrir okkur því það hefði verið fínt að spila fljótlega eftir Þróttara leikinn og ná honum úr sér með sigri. Einnig væri fínt að spila við Fjölni akkurat núna þar sem þeir eru enn í sigurvímu og vel lúnir eftir frábæran sigur á Fylki. 

Við notum tækifærið og óskum þeim til hamingju með það að vera komnir í úrslitaleikinn. Ég held að þetta sé í fyrsta sinn síðan við fórum í úrslit á móti KR 1994, þar sem Gunni áttir stangarskotið fræga, sem lið úr b deild fer í úrslit. Sýnir þetta kannski það að það er ekki svo mikill munur á efstu liðum í okkar deild á liðum um miðja deild í efstu deild?

Mér skilst að við eigum æfingaleik við Fylki í staðinn fyrir Fjölnisleikinn í Grindavík á föstudag. Ég er ekki með tímann á leiknum eins og er en kem betur að þessum leik síðar.

Óli Stefán 


Gullmoli

leikmenn06_ray" Óli þú hefðir átt að koma með okkur Orra í golf í gær. Það var ótrúlegt veður, við Orri vorum alveg að krókna úr hita."

Ray Anthony Jónson 

 

 

 

 

 

 
Ray með gullmola

 

Óli Stefán 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband