Æfing-fundur

Bara að minna menn á æfingu í Grindavík á morgun kl 18.30. Það verður fundur líka og ef menn hafa hugmyndir um fjáröflun þá endilega koma með hana á morgun. Nefndin ætlar nefnilega að funda eftir æfingu og púsla niður þessu sem komið er og þá byrjum við fljótlega að vinna í þessu. evropa_kort[1]

Úr því að við erum farnir að ræða um æfingaferð langar mig aðeins að fara yfir það hvert ég hef farið síðan ég fór með meistaraflokki 1993 í fyrsta skipti. 1993 Þýskaland - 1994 Laugarvatn - 1995 Þýskaland - 1996 (ég var í Þrótti Nes þá og fór til Hollands en Grindavík fór til Skotlands) - 1997 England og skotland (Mancester og Glasgow) - 1998 Þýskaland (Hannover) - 1999 Spánn - 2000 Spánn - 2001 Spánn - 2002 portugal - 2003 portugal - 2004 Júgoslavía (Belgrad) - 2005 Spánn - 2006 Tyrkland.

Ég er semsagt búinn að fara 14 ferðir til 8 landa og nokkrum sinnum til nokkra þeirra. Svo hef ég farið til Aserbasjan, Sviss og Austurríkis í evrópukeppninni. Svo má nátturlega ekki gleyma æfingaferðinni sem ég fór í þegar ég var í þriðja flokki til Færeyja sælla minninga.

Óli Stefán


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Jæja strákar nú verum við að biðja ykkur um að slaka á í athugasemdum því að kerfið gæti bara hrunið. Allavega slaka á svo að aðrir komist að..................

Sjö-an (IP-tala skráð) 9.1.2007 kl. 22:44

2 Smámynd: Meistaraflokkur karla Grindavík

Segðu svo að það borgi sig ekki að æfa fótbolta.....

Eysteinn 

Meistaraflokkur karla Grindavík, 10.1.2007 kl. 02:42

3 identicon

bara vera tilbúnir á æfingu 18.30

sjö-an (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 14:44

4 identicon

Það verður bara útihlaup í kvöld strákar - taka hlaupaskóna.  Kveðja, Gunnar Már

Gunnar Már (IP-tala skráð) 10.1.2007 kl. 15:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband