Ekki sopið kálið þó í ausuna sé komið - Til leikmanna meistara - og 2. fl. karla

Jæja drengir.

 

Ekki hefur sala miða gengið jafn vel og vonast var eftir og nú þurfum við að klára þetta dæmi á morgun.

 

2. flokkur spilar æfingaleik annað kvöld en mætir í verkefni vegna þessarar miðasölu í gula húsið kl. 18:00 nema menn hafi MJÖG GÓÐA afsökun. Ef hún er til staðar, skulu menn hringja í síma 694-5215 og tilkynna hana NÚNA.

 

Þeir sem verða á æfingu í Grindavík klukkan 18:00 verða í gula húsinu, þar til sölu miða er lokið. Þeir sem hafa MJÖG GÓÐA afsökun fyrir að komast ekki í það hringi í síma 694-5215 og tilkynni hana NÚNA.

 

Mér er alveg sama hvað menn hafa selt og ekki selt, menn hætta ekki að hlaupa í leik þó þeir hafi skorað eitt-tvö mörk og ENNÞÁ SÍÐUR ef menn hafa skorað sjálfsmark.

 

E.H. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vel orðað hjá þér Eysteinn. Þekki það vel að vera í þessari stöðu. Þá er bara að hífa sokkana upp og snúa vörn í sókn ;) Gangi ykkur vel

Pet #4 (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 08:51

2 identicon

Strákar.....afhverju auglýsið þið þetta ekki upp í bæjarfélaginu???  Fullt af fólki sem veit ekki af þessu og langar að sjá þetta!  Komið allir með hugdettur í þessu en ekki láta 2-3 menn sjá um að hugsa fyrir ykkur!  Hvað getur verið auðveldara en að selja 80 miða í 2700 manna bæjarfélagi??  Takið á ykkur rögg strákar og farið að vakna......þetta er engin steypa hjá Húnanum...þetta býr til karakter innan sem utan vallar að commúnikeita við fólk.  Ray......ég tek 2 miða hjá þér. 

Gunnar Már (IP-tala skráð) 13.3.2007 kl. 13:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband